Lóa Sif
25.11.2006 16:27:28 / loasif

Svara plís:)

1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?
2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
4.Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
5.Hvaða lag minnir þig á mig?
6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
7.Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?
8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
9.Hvernig stráka fíla ég?
10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
11.Hvað er mest einkennandi við mig?
12.Hvaða búðir elska ég að fara í?
13.Lokaorð til mín?



» 21 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 14:20:03 / loasif

Fleirri fleirri myndir:)

Ennþá fleirri myndir komnar :)

Setti inn allar eyjamyndirnar....og minningarnar sem koma þegar ég skoða þessar myndir aftur...:D eftir þessa þjóðhátíð þá fer ég næstu ár!....rosaleg upplifun...fyrir utan það að tjaldið okkar var nærrum fokið þannig að við þurftum að sofa útí bíl...heheh  : )

BLISIN!! lííífið er yndiiislegt

Svo eru myndir frá tjútteríi .....09.09 komu nokkrir til mín ...kíktum so í ammilli til Jobba vinar...og so nirrí bæ...pravda : )

Ég og Telma systa Bjarka : )

sætu mýslurnar mínar: ) Tara Dögg,Alexandra og Anna Björk

Fréttirnar af mér eru þær...að ég er byrjuð í nýjum vinnum....Benetton og Levis..sömu eigendur...rosalega fínt að vinna þar: ) þannig næst þegar ykkur vantar föt...koma til Lóóu sín: )

so á mín bara ammilli eftir nokkra daga 20. september...verð rosa stóra alveg 19 ára :D

um helgina er ég að vinna í Benetton í smáralind...þannig það verður ósköp lítið gert um kveldin...

bæó....er farin að taka til...: )

kv.Lóa sín


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 17:15:03 / loasif

Nýjar myndir!

Já ég er byrjuð að blogga svona mánaðarfresti:) ekki alveg að virka....Nenni ekki að blogga núna...er að fara taka til og hjálpa mömmu að baka....Haaa þvílíkur dugnaður er þakki:D

En það eru komnar nýjar myndir:)

nokkrar síðan frá föstudeginum....Hjá Valdísi...ekkert smá langt síðan ég gerði eitthva með anítu og henni músunum:)

Flestar frá laugardeginum...Þá geerði ég hvað...jújú fór í ammilli til Rafns...so barasta bærinn:)

undir Tjútt 26.08

Ég og Anna Karenið mitt:)

Múnderingin mín:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 23:59:12 / loasif

:) daaarlin

vá ég bloggaði seinast 22.Maí! Ekki veitir af smá bloggi:)

Veit ekki hvar ég á að byrja eða hverju ég á að segja frá:)....Ég er allavegana búin að vera í sumarfríi í 2 vikur..búin að njóta þess að bróðir minn frá finnlandi og já nei eg er ekki finnsk ha ha fékk þessa spurningu um dagin....konan han johanna og dóttir hans eva eru á landinuuuu.......Fór í bláa lónið...Á akranes...sund og sund..grillveislu og skírn..smá tjútt..og já útileigur!!....
Fór á Akureyri á bíladaga..Það var ekkert smáá gaman...
Myndir frá helginni...:)
(frá hjalta)

(Ívars)

Doldið margar ....og allar af sama fólkinu en aaalltílæi..

Svo var það Ólafsvík! Færeysku dagarnir..Það var líka ekkert smá gaman..Fór reyndar að sofa báða dagana kl 3! Sooonnereddda...:) En já ég var að fatta að ég er ekki búin að láta myndinrar inná sem ég tók ..læt bara á morgun...Það var ekkert smáá mikið af fólki þarna....gjörsamlega aaaallir sem ég þekki heheh eða sonna nærrum því:D...

Jaaaaaaaá ég veitiggi frá hverju ég á að segja...

aaaaaallaveana síðustu helgi þá fór ég í ammilli til Sigrúnar Baskins...á fös.. hér koma nokkrar myndir....hef þetta bara sonna smá myndablogg....;)

;D

jájá hvað er ég að gera?

;D

heheheh

;D

Hafiði séð svona grettu frá mér áður?...nei það held ég ekki heheheh ojjj ha ha underhaken og alles bara

Jaaaaaahá....Planið fyrir helgina næstu....allavegana á fös ætla ég að vera með Bjarka mínum hann er að koma frá Grímsey:) sooooo á lau...gera eitthva sniðugt..og um kveldið er smá partý...soooo á sun er bíó á pirates of the karabíen

...............nenniggi meiru....var sonna að blogga til að blogga...

Commenta!

kv...L ó a


» 16 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 00:11:39 / loasif

Herkúleeees!

ÉG eeeeeelska Herkúles...

Enda er hann minn!!!

minn!

minn!

minn!

......................

Líka..Ég ætla að byrja blogga aftur...og það kemur nýtt á morgun eða hinn......

eða hinn....

eða hinn....

og það verður ábyggilega langt blogg....Því að ég hef frá mörgu að segja.....

kv.Lóa Sif........

Hjalti...ÉG...Ívar...í útskriftarveislu hjá Ómari:)

Pose!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 00:16:41 / loasif

...

Ágústa Eva/Silvía Nótt

Ágústa að syngja í ópinu fyrir 1-2 árum síðan...gaman að sjá: )

http://b2.is/?sida=tengill&id=168302


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 18:09:51 / loasif

Ammilli!

Hún á ammilli í daaag

Hún á aaammilli í daaag

hún á aaaammmmilli hún Tara Döööögg mín

Hún á aaaaammmilli hún tara

Hún er 19 í daaaaag

Þessi elskulega perla á ammilli í dag ....Til Haminingju með ammillið Taaara Faaallega Döggin mín: ) :*

Njóttu ammillisdagsins þíns : )

Kv. frá þinni Lóu Sif:) ég mun ALLTAF vera til staðar fyrir þig:*

lof jú

(væmið ég veit það en þetta er fallegt: ) )


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 15:05:32 / loasif

bloooogg! loksins

Jæææja er ekki komin tími til að blogga smá til að ég loki ekki síðunni á endanum:D

váá ég ætla byrja á því að segja frá þessari nótt minni!!! mér dreymdi mjög skrítin draum so tókst mér að sprengja á mér vörina í svefni!! sayyy whuuut !! já ég veit!;) en já ég hef verið að snúa mér við á FULLRI ferð hef verið að hlaupa í svefni eða gera eikkvern asskota....og skellti mér bara á vegginn(steinsofandi) og vaknaði við það...og náttla skallaði veggin með munninum og sprengdi á mér vörina! og hún er bólgin vinstra megin ha ha ha ha  HVERNIG ER ÞETTA HÆGT!! jiiiiiminn

og so draumurinn sem mér dreymdi eina sem ég man...er að ég var með fjölskyldu írisar rutar á einhverju hóteli...og HA HA vá so man ég íris þorði ekki að fara á klóstið ein þannig hún bað mömmu sína um kopp til að pissa í í herberginu...en já so fór ég og einhver strákur..maniggi hver það var á svalirnar og vorum með eitthvað sonna teygju dót til að skjóta út...og það var sonna kringlóttur álbakki ...og ég lét popp og egg og hambó sósu og allskonar mat og sósur með...og HENTI því á fólkið...afhverju veit ég ekki....fannst þetta ótrúlega gaman...so alltíeinu fengum við flugeld uppí svalir frá fólkinu og ég skaust undir eldhúsborðið í felur...vá steik!!

hvað ég get dreymt er alveg ótrúlegt!

en jæja ég er ekki búin að blogga svo lengi að ég veit ekkert hvar ég á að byrja...það hefur alveg helling gerst...

Íris Rut útskrifaðist á laugardagin....og Dóri líka....og Kata líka...ég fór á útskriftina hennar írisar..og hugsaði að ég hefði staðið þarna uppi líka : / verð bara að standa mig í haust í FB

Til hamingju aftur með allar þessar útskriftir: )

helgin var fín...á fös fór ég í bíó á Bandidas..með fullt af fólki so bara heim..

á lau...útskriftin hjá írisi....og útskriftarveisla hjá dóra og hvata um kveldið...og so smá nasa ...og so auðvitað pizza king og e´g var komin heim um 3!!! nenntti ekki að djamma!

og bíó aftur í gær...á Da Vinci Code geeeeðveikt góð mynd...mæli alveg sko með þessari!

jæja komið gott...: )

kv... Lóa Sif með sprungna vör!

ég og íris...doldið stór mynd en það er bara betra;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 17:52:47 / loasif

minnsirkus!

Var að fá mér minnsirkus.is

Rosalega sniðugt...;)

miklu flottara en blog.central

getur bloggað,sett albúm og kynnst fólki:)

Fáið ykkur; )


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 16:31:07 / loasif

smá gaman:)

Þið verðið að svara þessu fyrir mig í commentum:) þetta er svo fyndið...

Veldu mánuðinn sem þú fæddist:
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn-
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskifting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í eftirnafninu þínu -
A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að ég þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Af því mér finnst egg góð
H- Af því að ég er á sýru
I- Af því ég misteig mig
J- Af því ég er með vörtu
K- Af því mér líkar Cheer
L- Af því að ég var skökk/skakkur
M- Af því ég var full/ur
N- Af því að mamma sagði mér að gera það
O- Af því ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Af því að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Af því að ég elska náttfata party
W- Af því að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Af því að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum

muniði að svara:)

mitt er

Ég skaut,húsið þitt af því ég fékk engar gjafir um jólin ....


» 33 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 16:20:44 / loasif

Páskablogg:)

GLEÐILEG JÓL Borðiði eins mikið af páskaeggjum eins mikið og þið getið!! ég fékk meiraðsegja 2! bæði nr 4 þannig ég fékk eiginlega nr 8! ;)

Páskarnir!!

Ég er ekki búin að blogga í laaangan tíma útaf netið var ekki í lagi í smá tíma..so hef ég verið að bíða eftir myndum á netinu sem koma aldrei!! skemmtilegast að blogga og hafa myndir með: )

Jæææja hvar á ég að byrja segja bara frá allri vikunni...seinustu helgi þá gerði ég ekki neitt!!! ég lá bara í leti heima með nammi og spólur því lóa var lasið : ( sem gerist sjaldan..

Mánudagur: Maniggi ábyggilega ekki neitt..heima að horfa á sjónvarpið

Þriðjudagur: Fór í smáralind með báru,margréti og grétu...fengum okkur pizza hut..fór til ívars og fékk miðana mína..fór til töru og hún kom mér á óvart með nýja bílnum sínum:D keypti sér bláan poli ýkt flottur ...með flottum græjum og allt..líka geðveikt að hún sé að fá sér bíl því ég bý í kópavogi og hún lengst uppí sveit ...grafarvogi!...ooog kíktum á rúntinn..hittum strákana þ.e.a.s Ragga,Gísla og Pálma...

Miðvikudagur: Ég,Bára og Margrét..fórum í partý sem var haldið á Amsterdam..sem strákarnir úr vatnaliljur.tk voru að halda...fótboltalið eitthvað Gummi Jóns og ívar allavega...Það var rosalega gaman hitti stelpur úr gamla grunnskólanum: ) og borgóstelpurnar..: ) og so komu íris og bobby...og við skelltum okkur á Nasa þar sem Deep Dish var að spila..það var alveg gaman þar...það verður bara aldrei eins gaman og var á Pendulum!

Fimmtudagur: Fór til ömmu gömlu og gisti þar: ) hún er alltaf ein heima á meðan afi minn er á spítala : ( leiðist so mikið..hjálpa henni smá: ) alltaf gott að gista hjá ömmum...Ömmur eru langbestar! Þær eru svo rólegar og mikil ást í þeim

Föstudagur: Ætlaði ekki að gera neitt! bara vera heima og sonna...en heyrði þá í Eyrúnu Helgu vinkonu..og við erum ekki búin að hittast leeengi leeengi...og ég fór til hennar uppí mosó..fórum í smá partý til vinar hennar..nokkra stráka..fórum þaðan í partý til Benna held ég að hann heiti...allavegana vinur Breiðholtsstrákana...fórum þaðan og partýið líka í partý til Andra Þórs..þar sem gítarstemmingin var í hámarki: ) og mjög sjaldgæft að hann haldi partý: ) Hjalti náði svo í mig,Gassa,Einar og það var einn meir...og við skutluðum þeim til Benna aftur..og fengum okkur Pizza King jiiimin eini þetta er bestu pizzur í geiimi!!:haha: ooog so sóttum ívar og vinkonu hans og skutluðum þeim heim í smá kúr;)

Laaaaugardagur: heima! taka til! fyrir páskadag

Dagurinn í dag! Borða brúnköku ..drekka kakó..borða einn bita af páskaeggjunum...so í kvöld verður eitthvað gert með henni Karlottu honníbönn!

Þettta var freeekar leiðinlegt blogg...bara yfirlit..til að blogga bara!

á Mið er geðveikur DJ á nasa..aftur..ætli ég skelli mér bara...allavegana ef ég fæ frítt..sé til..

Kv. frá páskaunganum

mmm góður jólamatur í kvöld


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 00:47:21 / loasif

Fimmtudagur

Jæja ég sit hér að hlusta á Knocking On Heavens Door (geðveikt lag)...skoða blogg og er á msn...ég er orðin háð msn það er á hreinu...:haha: er varla að nenna blogga en ég verð að standa mig í þessari síðu til að þið nennið að heimsækja hana: )

Hey get sagt ykkur fréttir !!! fór í fyrsta! ökutíman minn á mánudagin haha ég er soo stollt...en mér fannst það bara gaman að keyra..fyrsta skipti sem ég sit við stýri: ) og hann sagði að ég væri bara rosa góð..og nei hann segjir það ekkert við alla þú þarna!!;) haha...en já ég drap einu sinni á bílnum mér fannst það rosa fyndið: ) hefði getað fengið bílprófið fyrir 2 árum..en einhvernvegin bara ekki byrjað! gaman að skipta um gír :haha:

Á þriðjudagin þá leigðum við spólu( ég,tara,raggi og gísli) og ég stakk uppá að horfa á einhverja hrææðilega svona gamla mynd..hef heyrt að þær eigi að vera sem ógeðslegastar...hef ekki séð eina...þeir leigðu Candyman og sögðu að ég myndi ekki getað sofið eftirá...ég var alltaf að spyrja hvort myndin væri ekki að fara byrja...það skýrir sitt...þeir bara gleymdu að þeir hefðu séð myndina þegar þeir voru litlir pollar..æjjj þeir eru bara með lítið hjarta...haha :haha: (og ég verð rosalega hrædd og bregður mikið í ófreskjumyndum ég er ekki að reyna vera cool haha) jájá frááábær saga ....eiiiinmitt

Í gææær þá fór ég á söngvakeppni Borgó..með þeim írisi og rakel...og gaman að hitta borgófólkið..hitti það alltof sjaldan t.d. eins og ykkur  Eyrúni og Óla...en já Sindri Eldon vann...var ekkert smá fyndin og spes...enda sonur hinnar einu sönnu Bjarkar..enda með bestu sviðsframkomuna...kíktu á bjórkveldið eftirá..og ég var so sniðug að ég var ekki með skilríkin mín..þannig mér leið eins og ég var orðin 16 ára gömul aftur reyna tala gaurinn til að ég væri orðin 18 ára! ...en Katrín var so góð að fara með mér að ná í þau: ) skaaan

jæja þetta er orðið gott...

og já Ungfrú Reykjavík var í kvöld og ég er rosalega sátt með úrslitin enda hún Ásdís Svava í öðru sætinu!

myndir frá gærkveldinu

Katrín..ég og óli...

sætar er þakki;)

Góða nótt og sofið rótt í alla nótt:)


» 17 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 19:55:42 / loasif

Helgin

Þetta var nú bara ágætishelgi...Nema föstudagurinn klúðraðist smávegis en við gerðum bara gott úr þessu

Föstudaaagurinn...

Vorum búnar að plana að fara til Keflavíkur að horfa á Rakeli og brósa hennar spila í lagasmíðakeppninni....en bróðir hennar hætti við að fara..þannig Rakel hætti við..og á endanum hættum við bara við að fara til keflavíkur..EN á endanum eftir vesen fórum við til keflavíkur..Ég,Íris Rut,Arnar,Rakel og frænka hennar...vorum inná traffic í svona hálftíma..mér fannst suddaleg stemming þarna..Svona rokkarabar sveitt stemming...ekki alveg að meika það..en þegar keppnin var búin skutluðum við öllum heim og ég búin að bíða allt kveldið að fá mér pizzaking! en so var ég ekki með kortið mitt þegar við komum á staðin og við íris deildum lítilli pizzusneið..ég hefði getað borðað heila pizzu af þessu rusli..þetta er so gott!! hittum ívar,gumma,ingvar og vini fyrir utan...mjööög hressir;) Gaman að hitta þá: )

Lauuugardagurinn...

Fór í ammilli til manns frænku minnar...mmm so góður matur...ávextir,grænmeti,bakkelsi og allskonar gotterí: ) um kveldið fórum við Margrét á Pravda í bikinímódelspartý sem Rakel og vinkonur voru að halda...frítt áfengi og sætur barþjónn;) hehehe en já smá hluti af kópavogsstrákunum komu svo..Já svo þegar ég labbaði að margréti þá var verið að spyrja hana og vigga um skilríki...og þá mig líka..og ég mundi ekki ansans kennitöluna á kortinu mínu!! Langt síðan ég hef lent í svona..en við skelltum okkur bara á Hverfis..og þar hitti ég góðan og gamlan vin: )Skemmtilegt að hitta hann..

Dagurinn í dag er bara búið að vera leti...Sunnudagar eru dagar til að hanga heima uppí rúmmi..fékk góðan kvöldmat læri og brúnaðar karpellur mmmm gott: )

Svo nokkrar myndir í endan: ) síðan í gær

Brynja og Rakel

Ég,Margrét og Bára


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:10:05 / loasif

Fyrsta bloggið:)

Vá ,ég veit ekki hvar ég á að byrja..það hefur ýmislegt gerst á síðustu 3 mánuðinum..:)

Helstu fréttirnir eru að það eru 2 yndisleg börn komin í heimin:)

Annað..er lítil perla sem kom í heimin 31.Janúar..hún er komin með nafn og heitir Alexandra Siring Ólafsdóttir...hún er dóttir óla stóra frænda:) ÉG er ekki búin að sjá hana:( en litla nýja 3 manna fjöldskyldan koma í júlí að skíra litlu perluna..með fjölskyldu Merete mömmunar..þau búa í Noregi:)

heheheh Óli frændi með Alexöndru heima í fyrsta sinn:) ótrúlega stolltur

ooo hva mér langar að knúsa litla nebban :)

Svo rétt eftir þetta eignaðuðust Steinunn og Eyjó litlan prins sem eru ekki enn búin að segja  hvað hann heitir ..ekki fyrr en hann verður skírður auðvitað:)

Hann fæddist þann 15 febrúar kl 15:) ótrúlega fallegur..þegar ég heimsótti hana þá gat ég ekki tekið augun af honum...og skrítið að sjá steinunni í móðurhlutverkinu..yndislegt:) og Eyjó stendur sig einnig vel sem ungur pabbi :)

http://barnaland.is/barn/39657/ (heimasíðan á barnalandinu)

Fallegur ha: )

Svo hef ég verið að spá..hvað mér langar að verða þegar ég verð eldri: ) er að fara byrja í FB í haust.. og ég er ekki þessi náms týpa!..ég er löt..og nenni ekki að læra..en ég þarf að drífa mig í að standa mig og læra heimanámið og mæta í skólan:/ En ég trúi að ef ég finn mér eitthvað sem mér langar til að verða þá læri ég og læri:) og mér hefur alltaf langað til að vinna með börnum..ætlað að verða barnasálfræðingur eða barnalæknir..en svo heyrði ég talað um ljósmæðrarstarfið og ég held barasta að mér langi að læra það: ) hef heyrt so mikið gott um það:) pælið í því að vera fyrsta manneskjan að sjá litla barnið að koma í heimin ,litla andardráttin litla grátin..hvort þetta sé strákur eða stelpa: ) Já og þá myndi ég geta unnið sjálfstætt..hef heyrt um ljósmæður sem fara til fátæku landana og hjálpa konum að fæða..og veita þeim upplýsingar hvernig á að bregðast við: ) örugglega yndislegt starf: ) en auðvitað eru gallar við það líka;)

Jæja svo kemur að helginni: )

Í kvöld er Rakel og Guffi bróðir hennar að fara keppa í annað sinn á Traffic í lagasmíðakeppninni..og auðvitað mætum við og styðjum þau: )

Guffi                                                   Rakel

Á morgun þá er ammilli hjá mann frænku minnar um dagin...og um kveldið þá er GusGus á Nasa sem ég verð að fara á! hef aldrei komist á tonleika með þeim

og Rakel Ýr og vinkonur hennar í keppninni að fara halda partý á Pravda..mæti þangað líka:)

ohhh...ætlaði að láta mynd af skvísunni inná en það er eikkvernvegin ekki hægt!! Skvísan á eftir að vinna þetta! ég veit það alveg viss um það!:D

jæja komið nóg í bili..ég er farin að taka til í herberginu mínu og þvo þvotta!! nóg af því

KV. frá Lóunni: )


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 00:47:21 / loasif

Ný síða

Jæja komin með nýja síðu:)

ég blogga á morgun:)


» 2 hafa sagt sína skoðun